Fara í efni
03.06.2026 Tilkynningar

Íþrótta- og tómstundastyrkir Fjarðabyggðar

Deildu

Fjarðabyggð óskar eftir umsóknum um styrki til íþrótta- og tómstundastarfs í Fjarðabyggð. Auglýst er annars vegar eftir umsóknum um íþróttastyrki en þeir skiptast í þrjá flokka. 


1.    Íþrótta- og tómstundastyrkir
Styrkir eru veittir til félaga á grundvelli fjölda barna og ungmenna á aldrinum 6-18 ára sem eru með lögheimili í Fjarðabyggð.    
2.    Rekstrar- og uppbyggingarstyrkir
Þessir styrkir eru hugsaðir til uppbyggingar á, eða stuðnings við reksturs, íþrótta- eða tómstundafélaga sem reka eigin aðstöðu og eru ekki hluti meginfélaga.
3.    Samvinnustyrkir
Umsóknir fyrir samvinnustyrki skulu fela í sér nákvæmar upplýsingar um samstarfsverkefnið, þátttökufélög, markmið verkefnisins og áætlaðan ávinning.

Við hvetjum félög sem reka eða vilja reka öflugt starf fyrir börn, ungmenni og eldra fólk til að sækja um.

Nánari upplýsingar um skilyrði og úthlutun styrkja má finna hér (hlekk á nýjar reglur)

Umsóknafrestur er til 31. júlí 2026 og skal umsóknum skilað á þartilgerðum eyðublöðum í íbúagátt Fjarðabyggðar. Mikilvægt er að umsóknir séu ítarlegar og uppfylli þau skilyrði sem krafist er í reglum um styrki.

Skilyrði fyrir því að Íþrótta- og tómstundafélög geti sótt um Íþrótta- og tómstundastyrk eða rekstrar- og uppbyggingarstyrki er tenging þeirra við Abler kerfið og heimild til að taka við frístundastyrk frá Fjarðabyggð.

Nánari upplýsingar veitir Laufey Þórðardóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs laufey.thordardottir@fjardabyggd.is eða í síma 470-9015

Íþróttastyrkir eru greiddir út í ágúst mánuði eftir að viðkomandi félög hafa skilað inn tilheyrandi gögnum.