Fara í efni
05.08.2026 Tilkynningar

Kjörstaðir í Fjarðabyggð 29. ágúst 2026

Deildu

Við þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 29. ágúst 2026 verður kosið á sjö kjörstöðum í Fjarðabyggð.

KjördeildKjörstaðurOpnunartími
MjóifjörðurSólbrekka09:00–14:00*
NorðfjörðurNesskóli09:00–22:00
EskifjörðurEskifjarðarkirkja09:00–22:00
ReyðarfjörðurSafnaðarheimilið09:00–22:00
FáskrúðsfjörðurGrunnskólinn09:00–22:00
StöðvarfjörðurGrunnskólinn09:00–22:00
BreiðdalurGrunnskólinn09:00–22:00

* Kjörfundi í Mjóafirði lýkur strax og unnt er samkvæmt 91. gr. kosningalaga nr. 112/2021, þó ekki fyrr en kl. 14:00 og ekki síðar en kl. 17:00.

Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki.

Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Fjarðabyggðar.

Á kjördag hefur yfirkjörstjórn Fjarðabyggðar aðsetur í Eskifjarðarkirkju.

Yfirkjörstjórn Fjarðabyggðar

Gísli M. Auðbergsson
Agnar Bóasson
Kristjana Mekkín Guðnadóttir