Fara í efni
Tilkynningar

Kvennaverkfall - Föstudaginn 24. október

Deildu

Í ár eru 50 ár liðin frá kvennaverkfalli árið 1975. Af því tilefni hafa samtök kvenna, launafólks og fleiri hagsmunahópar boðað til samstöðufunda víða um land og mun sameiginlegur samstöðufundur á Austurlandi að þessu sinni vera á Egilsstöðum.

Fjarðabyggð styður jafnréttisbaráttu kvenna og kvár og  hvatti bæjarráð á dögunum stjórnendur til að leita  allra leiða til að konur og kvár geti lagt niður störf og tekið þátt í skipulagðri dagskrá þennan dag án skerðingar á launum.

Þetta mun  óhjákvæmilega hafa áhrif á þjónustu sveitarfélagsins, og mun þjónusta skerðast  eða vera með breyttu sniði að einhverjum eða öllu leyti þennan dag í flestum stofnunum.

Vegna þessara aðgerða mun eftirfarandi stofnanir þurfa að loka:

  • Engin starfsemi mun verða í grunnskólum Fjarðabyggðar eftir kl. 13:00
  • Engin starfsemi mun verða í leikskólum sveitarfélagsins eftir kl. 14:00
  • Skólafrístundir verða lokaðar á öllum stöðum.
  • Sundlaugin á Fáskrúðsfirði

Áhrifa af þessum aðgerðum mun einnig gæta í öðrum stofnunum, en ekki mun koma til frekari lokana enda hluti af þjónustu og starfsemi sveitarfélagsins  með þeim hætti að ekki er hægt að leggja hana alfarið niður, til að tryggja að velferð, öryggi og heilsu fólks sé ekki stefnt í hættu.