Fyrr í dag birtum við upplýsingar um framkvæmdir við Fjarðabyggðarhöllina á grundvelli þeirra upplýsinga sem okkur bárust frá verktaka. Nú hefur komið í ljós að þær upplýsingar voru ekki réttar. Við hörmum það og biðjum íbúa einlæglega afsökunar á því að rangar upplýsingar skyldu fara í loftið. Staðfest hefur verið að verktaki hóf í dag úðun á sólavarnarlagi á þaki Fjarðabyggðarhallarinnar, þrátt fyrir fyrirmæli um annað. Fjarðabyggð lítur málið alvarlegum augum og hefur þegar kallað eftir skýringum frá verktaka. Við leggjum ríka áherslu á að upplýsingar sem sveitarfélagið veitir íbúum séu réttar, skýrar og áreiðanlegar. Þegar mistök verða ber okkur að leiðrétta þau og upplýsa um staðreyndir málsins. Aftur biðjumst við velvirðingar á þessum mistökum og munum veita frekari upplýsingar þegar þær liggja fyrir.
10.06.2026
Leiðrétting vegna tilkynningar um Fjarðabyggðarhöllina
