Fara í efni
29.01.2026 Tilkynningar

Lífrænn úrgangur – pokar

Deildu

Við viljum upplýsa íbúa um að eftir frekari eftirgrennslan hjá Moltu á Akureyri sem tekur við lífrænum úrgangi frá Fjarðabyggð þá henta maíspokar betur en bréfpokar í þeirra vinnslu. Maíspokar jarðgerast fyrr og þar að leiðandi verður moltan betri. Einnig þá henta maíspokar betur fyrir þann vélbúnað sem Molta á Akureyri notar til að vinna úrganginn áfram í moltu.

Bréfpokarnir eiga það frekar til að frjósa í botninum á tunnum undir lífrænan úrgang og því erfiðara að ná þeim úr við sorphirðu.

Íbhttps://www.molta.is/is/heimilinúar sem hafa þegar keypt bréfpoka geta áfram notað þá þar til birgðir klárast. Að því loknu mælir Molta með notkun maíspoka fyrir lífrænan úrgang.

 Við þökkum íbúum kærlega fyrir áframhaldandi þátttöku í flokkun úrgangs. Með sameiginlegu átaki, aukinni þekkingu og fræðslu erum við að bæta meðhöndlun lífræns úrgangs og draga úr því magni sem fer til urðunar.

Fyrir frekari upplýsingar um hvernig á að flokka lífrænan úrgang er að finna á heimasíðu Moltu.