Malbikunarframkvæmdir hafa staðið yfir víða í Fjarðabyggð í vikunni. Áætlað er að halda þeim áfram í næstu viku, en umfang og tímasetningar ráðast af veðri og aðstæðum.
Á Breiðdalsvík var malbikuð 170 metra löng gangstétt og við Balaborg á Stöðvarfirði var lagt malbik á um 230 fermetra bílastæði. Einnig var unnið að malbiksviðgerðum á Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði og malbikað við vogina í Þernunesi. Bilun í malbikunarstöð tafði framkvæmdir um hluta vikunnar.
Í næstu viku er stefnt að því að malbika götustubb á Eskifirði og gangstétt við skólann þar. Þá eru fyrirhugaðar yfirlagnir á Reyðarfirði og í Neskaupstað, ef veður leyfir. Til þess þarf að vera nægilega þurrt.
Nákvæmar tímasetningar liggja ekki fyrir. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát við framkvæmdasvæði og fylgja merkingum á staðnum.
