Framboðsfrestur vegna bæjarstjórnarkosninganna í Fjarðabyggð 16. maí 2026 rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.
Framboðslistar skulu hafa borist fyrir þann tíma. Hægt er að skila þeim til formanns yfirkjörstjórnar, Gísla M. Auðbergssonar, Strandgötu 35, Eskifirði, sími 4161616 eða á fundi yfirkjörstjórnar sem haldinn verður í kirkjumiðstöðinni að Dalbraut 2 á Eskifirði, föstudaginn 10. apríl 2026 milli kl. 11:00 og 12:00.
Á framboðslista skulu vera a.m.k. níu nöfn og ekki fleiri en átján.
Tilgreina skal skýrlega nafn frambjóðanda, kennitölu, lögheimili og stöðu/starfsheiti.
Einnig skal fylgja yfirlýsing um hverjir tveir séu umboðsmenn listans.
Jafnframt skal fylgja stuðningsyfirlýsing frá 40-80 einstaklingum sem kosningarétt eiga í sveitarfélaginu.
Um tilhögun framboða vísast að öðru leyti til kosningalaga nr. 112 frá 2021.
Yfirkjörstjórn Fjarðabyggðar
Gísli M. Auðbergsson
Kristjana Mekkín Guðnasdóttir
Agnar Bóasson
