Bálhvasst er á Austfjörðum eins og spár gerðu ráð fyrir. Talsverður snjór hefur safnast undir Grænafelli á Fagradal. Óvissustigi hefur því verið lýst yfir á Fagradal vegna snjóflóðahættu við Grænafell.
Vegurinn er enn opinn en vegfarendur beðnir um að hafa varann á. Komið getur til lokunar án fyrirvara.
Í dag verður áfram hvöss norðlæg átt og spár gera ráð fyrir viðloðandi úrkomu við Grænafellið fram eftir degi. Draga á úr úrkomu seinnipartinn og snúast í norðvestlægari átt. Snjósöfnun verður þá líklega minni og dregur úr hættu.
