Páskafjör í Fjarðabyggð býður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Um páskana verður líf og fjör víða um sveitarfélagið, með viðburðum fyrir börn og fullorðna, útivist, menningu, tónlist og páskastemningu. Við hvetjum íbúa og gesti til að kynna sér dagskrána vel og njóta páskanna í Fjarðabyggð.
Miðvikudagur 1. apríl
07:00–20:00 Sundlaugar opnar í Neskaupstað og á Eskifirði
14:00–19:00 Oddsskarð opið
18:00 Pílumót á Hótel Eskifirði (nánar á Facebook-síðu Píluklúbbs Austurlands)
Skírdagur – fimmtudagur 2. apríl
10:00–16:00 Oddsskarð opið
10:00–18:00 Sundlaugar opnar í Neskaupstað og á Eskifirði
10:00 King of Oddsskarð (keppt í bretta- og skíðaflokki)
11:00–14:00 Snjósleðaferð á Gerpissvæðið
Mæting í Oddssdal ofan við Skuggahlíð á Norðfirði
16:00 Austurland Freeride Festival býður upp á ferð frá topplyftu og niður í sveit, ef aðstæður leyfa
18:00–20:00 Pizzahlaðborð á Café Cosy
21:00–01:00 Partýbingó með Tony & Svens í Valhöll
Föstudagurinn langi – 3. apríl
10:00–16:00 Oddsskarð opið
10:00–18:00 Sundlaugar opnar í Neskaupstað og á Eskifirði
11:00 Æðruleysismessa í Stöðvarfjarðarkirkju
Séra Benjamín Hrafn leiðir stundina. Hljómsveit sér um tónlistina. Boðið verður upp á súpu og brauð að stund lokinni. Samskot verða tekin fyrir veitingum.
11:00–14:00 Snjósleðaferð á Gerpissvæðið
Mæting í Oddssdal ofan við Skuggahlíð í Norðfirði
15:00 Pond Skim í Oddsskarði
16:00 Austurland Freeride Festival býður upp á ferð frá topplyftu og niður í sveit, ef aðstæður leyfa
16:30–20:00 Aprés Ski-partý í Randulffssjóhúsi
21:00 Rail Jam á Eskifirði (staðsetning auglýst síðar á Instagram @mjoeyribigjump)
21:00 Súellen tónleikar í Tónspili
Miðasala fer fram á Tix.is
Tímasetning auglýst síðar Hipsumhaps tónleikar í Frystihúsinu í Breiðdalsvík
22:00 Páskabingóveisla á Café Cosy
Laugardagur 4. apríl
10:00–16:00 og 20:00–22:00 Oddsskarð opið
10:00–18:00 Sundlaugar opnar í Neskaupstað og á Eskifirði
10:00 Páskaeggjaleit á Mjóeyri fyrir 12 ára og yngri
11:00 Páskabrautin í Oddsskarði fyrir 12 ára og yngri
14:00–18:00 Barinn opinn á Hótel Eskifirði (bolti í beinni, spil og léttar veitingar)
15:00–17:00 Páskasmiðja: bingó og litakósý fyrir börn og fjölskyldur í Stríðsárasafninu á Reyðarfirði
16:00 Austurland Freeride Festival býður upp á ferð frá topplyftu og niður í sveit, ef aðstæður leyfa
Fararstjóri: Sævar, sími 698 6980. Fyrir vana.
20:00–22:00 DJ Tony í Oddsskarði
22:00 Flugeldasýning í Oddsskarði
22:00 Músíkbingó á Beituskúrnum (ef veður leyfir, annars á Hildibrand)
23:00 Lifandi tónlist á Café Cosy með Júlíusi Óla trúbador
Páskadagur
06:00 Hátíðarganga út í Páskahelli á Norðfirði
10:00–16:00 Oddsskarð opið
10:00–18:00 Sundlaugar opnar í Neskaupstað og á Eskifirði
10:00 Skíðamessa við skálann í Oddsskarði
11:00 Fjölskylduguðsþjónusta í Fáskrúðsfjarðarkirkju
16:00 Austurland Freeride Festival býður upp á ferð frá topplyftu og niður í sveit, ef aðstæður leyfa
Fararstjóri: Sævar, sími 698 6980. Fyrir vana.
21:30 Páskamót Café Cosy í pílu (skráning á staðnum)
Annar í páskum
10:00–16:00 Oddsskarð opið
11:00–16:00 Sundlaugar opnar í Neskaupstað og á Eskifirði
