Vegna tengivinnu í aðveitustöð verður rafmagnslaust við Stöðvarfjörð, þéttbýli og dreifbýli frá kl. 16:00 til kl. 17:00 þann 23.3.2026. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana. Þann 24.3.2026 frá kl.08:00 til kl. 19:00 mun varavélar sjá Stöðvarfirði fyrir rafmagni. Við viljum biðja íbúa að fara sparlega með rafmagn meðan vélakeyrsla stendur yfir. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof
23.03.2026
Rafmagnslaust og varavélakeyrsla í Stöðvarfirði í dag mánudag og þriðjudag 23. og 24. mars
