Starfsfólk Verkís verður við rannsóknir á Innri-Einarstaðará á Stöðvarfirði miðvikudaginn 21. október og fimmtudaginn 22. október. Rannsóknirnar eru unnar fyrir Ofanflóðasjóð vegna hönnunar ofanflóðavarna fyrir bæinn.
Unnið verður við farveg árinnar og ofan við bæinn. Gert er ráð fyrir að grafa jarðkönnunargryfjur með gröfu til að kanna jarðfræðilegar og jarðtæknilegar aðstæður á svæðinu.
Starfsfólkið verður í sýnileikafatnaði merktum Verkís.
