Þann 20. janúar síðastliðinn kom upp grunur um matarborinn sjúkdóm í mötuneyti Skólamiðstöðvarinnar á Fáskrúðsfirði.
Um leið og grunurinn kom upp var í samræmi við verklag haft samband við Heilbrigðiseftirlit Austurlands (HAUST), sem tók út eldhúsið. Farið var yfir verklag og innra eftirlit með starfsfólki ásamt því að tekin voru sýni úr matarafgöngum.
Foreldrar voru upplýst um stöðuna í samráði við Heilbrigðiseftirlitið og fengu leiðbeiningar um hvað ætti að gera ef veikindi drægust á langinn. Heilbrigðisstofnun Austurlands var jafnframt gert viðvart. Ekki liggja fyrir upplýsingar um að börn hafi þurft að leita til HSA.
Í mötuneytinu borða daglega um 140 nemendur og 30 starfsmenn. Stjórnendum er kunnugt um að 12 leikskólanemendur og þrjá grunnskólanemendur sem fóru heim veikir þennan dag.
Niðurstöður sýnatöku beindu grun að grænmetisbollum sem boðið hafði verið upp á, og hafði HAUST samband við dreifingaraðilann og hann upplýstur um stöðuna.
Út frá niðurstöðum úr þessum sýnatökum má draga þá ályktun að Bacillus cereus toxin (Cereulide toxin) hafi myndast við framleiðslu á vörunni hjá framleiðanda. Eitrið er hitaþolið og eyðist því ekki við hitun í 72°C ( þolir hitun uppí 121°C). Uppruni matarsýkingarinnar er því hjá framleiðanda vörunnar en ekki í eldhúsi skólans. Dreifingaraðili hefur nú innkallað vöruna.
Frétt um innköllun: https://www.mast.is/is/um-mast/frettir/frettir/orverumengun-i-graenmetisbollum-og-buffi
Leiðbeiningar: Matarbornir sjúkdómar | Matvælastofnun
Frekari upplýsingar veitir Líneik Anna Sævarsdóttir, stjórnandi fræðlsumála og skólamála í síma 470 9027 eða á netfangið Lineik.a.saevarsdottir@fjardabyggd.is
