Fara í efni
06.07.2026 Tilkynningar

Söfnun á rúlluplasti og áburðarpokum í dreifbýli

Deildu

Terra mun í næstu viku, að beiðni Fjarðabyggðar, sjá um að sækja rúlluplast og áburðarpoka hjá bændum í dreifbýli sveitarfélagsins og koma efninu til úrvinnslu.

Stefnt er að því að hefja söfnun í Breiðdal mánudaginn 14. júlí.

Þeir bændur sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru beðnir um að senda tölvupóst á fjardabyggd@fjardabyggd.is eða hringja í síma 470 9000.

Bændur eru jafnframt beðnir um að safna áburðarpokum saman, til dæmis með því að setja þá í einn poka, áður en þeir eru sóttir.