Fara í efni
13.02.2026 Tilkynningar

Sprengt við landmótunarsvæði – Mjóeyrahöfn

Deildu

Vegna framkvæmda við landmótunarsvæðið við Mjóeyrahöfn verður hafist handa við sprengingar klukkan 17:00 í dag, föstudaginn 13. febrúar.

Sprengt verður daglega næstu daga eða: laugardag, sunnudag, mánudag og þriðjudag, einnig klukkan 17:00.

Lokun á meðan sprengt er
Áður en sprengt er verður þjóðveginum ofan við námusvæðið lokað, ásamt nærliggjandi svæði.  Lokunin varir í 5-10 mínútur og gildir eingöngu meðan sprengt er.

Við biðjum vegfarendur sem eiga leið um svæðið að virða lokanir og fyrirmæli.