Fara í efni
21.04.2026 Tilkynningar

Stóri plokkdagurinn – sunnudaginn 26. apríl

Deildu

Tökum höndum saman og hreinsum umhverfið okkar

Hvað þarf ég?

  • Glæra plastpoka – gott að hafa tvo (plast í annan, annað rusl í hinn)
  • Snæri eða bensli til að loka pokunum
  • Plokktangir (valfrjálst en hentugt)

Hvar fæ ég poka og búnað?

Hægt verður að nálgast poka og plokktangir frá kl. 10:00 sunnudaginn 26. apríl á eftirfarandi stöðum:

  • Norðfjörður – Bílastæði við Safnahúsið (Egilsbraut 2)
  • Eskifjörður – Áhaldahús (Strandgata 16)
  • Reyðarfjörður – Áhaldahús (Hlunnavogur 3)
  • Fáskrúðsfjörður – Áhaldahús (Hafnargata 39)
  • Stöðvarfjörður – Áhaldahús (Fjarðabraut 40b)
  • Breiðdalsvík – Áhaldahús (Selnes 14)

Hvar skila ég ruslinu?

  • Skila má plokkpokum fyrir utan áhaldahús
  • Einnig verða kör staðsett víðs vegar um byggðarkjarnana

Fjarðabyggð sér um að sækja pokana og fjarlægja kör dagana 27.–28. apríl.


Frekari upplýsingar

Nánari upplýsingar má finna á 👉 plokk.is