Ert þú, félag, fyrirtæki eða annar aðili í Fjarðabyggð með viðburð á döfinni um páskana? Þá viljum við heyra frá þér!
Nú er unnið að dagskrá Páskafjörs í Fjarðabyggð og óskað er eftir upplýsingum frá þeim sem vilja taka þátt með viðburði og fá hann kynntan í sameiginlegri dagskrá.
Sendið upplýsingar um viðburðinn til Magnúsar Árna Gunnarssonar, stjórnanda íþrótta- og frístundamála, á netfangið magnus.arni@fjardabyggd.is.
Tökum höndum saman og gerum Páskafjör að skemmtilegri og fjölbreyttri hátíð fyrir íbúa og gesti.
