Fara í efni
08.04.2026 Tilkynningar

Þak Fjarðabyggðarhallarinnar

Deildu

Vegna ábendinga er rétt að upplýsa að vart hefur orðið við að yfirborð einangrunarlagsins á þaki Fjarðabyggðarhallarinnar hafi losnað á einum stað.

Verktakinn sem vann verkið mun koma í vor og yfirfara þakið, líkt og samið var um í upphafi. Þegar ráðist var í verkið lá fyrir að viðbúið væri að koma þyrfti aftur að því til að ljúka frágangi.

Við þá yfirferð verður jafnframt farið yfir það sem komið hefur í ljós og metið hvernig best verður staðið að frekari frágangi. Ekki er gert ráð fyrir neinni sprautun í þeim frágangi.