-Uppfært kl. 09:53 24. mars 2026-
Heldur hefur dregið úr úrkomu á Austurlandi og vegir smátt og smátt að opnast. Enn er þó skafrenningur og úrkoma á fjallvegum eins og á Fagridal og Fjarðarheiði. Þar er lokun enn í gildi.
Gert er ráð fyrir að rýmingum á Seyðisfirði verði aflétt um hádegisbil í dag. Aflétting verður kynnt um leið og ákvörðun Veðurstofu liggur fyrir.
Vegfarendur sem fyrr beðnir um að fylgjast vel með upplýsingum um færð og veður.
-Uppfært klukkan 19:18 23. mars, 2026-
Vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði hefur Veðurstofa Íslands ákveðið rýmingu húsa á reitum SE01, SE02, SE04, SE24 og SE26 frá og með klukkan 20:00 í kvöld. Þeir rýmingarreitir er um ræðir má finna á kortasjá Múlaþings, https://www.map.is/mulathing, undir valmöguleikanum „Skipulag-rýmingarsvæði“.
Íbúar húsa á þessum reitum, rétt um tíu talsins, hafa verið upplýstir. Gert er ráð fyrir að rýming standi eigi skemur en til hádegis á morgun þegar veðrið á að ganga niður.
Í Neskaupstað hafa og verið gerðar ráðstafanir vegna varúðar á reit NE01 sem sjá má hér á Fjarðabyggð | Kortasjá | Loftmyndir af Íslandi | Íslandskort | Map of Iceland. Einnig undir valmöguleikanum „Skipulag-rýmingarsvæði“. Atvinnuhúsnæði er á því svæði og hefur verið takmörkuð dvöl þar til morguns.
Ekkert ferðaveður er á meðan veður þetta gengur yfir. Fjallvegir eru lokaðir eða að lokast en vegir í byggð eru opnir.
Íbúar í Neskaupstað og á Seyðisfirði sem upplifa óþægindi vegna aðstæðna eru hvattir til að hafa samband við hjálparsíma Rauða kross Íslands í síma 1717.
Veðurstofan hefur lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Austfjörðum. Búist er við talsverðri ofankomu í kvöld og til fyrramáls. Gul veðurviðvörun í gildi. Gera má ráð fyrir að fjallvegir í umdæminu muni lokast í kvöld.
Íbúar og vegfarendur á svæðinu hvattir til að fylgjast vel með fréttum af veðri og færð á vegum.
