Að gefnu tilefni viljum við upplýsa um vinnu sem fór fram við Fjarðabyggðarhöllina í morgun og fyrirhugaða vinnu næstu daga.
Í morgun var búnaður sem notaður verður við úðun á þaki hallarinnar settur saman og prófaður. Um er að ræða nokkuð umfangsmikinn búnað, meðal annars slöngur og stúta, og því þurfti að kanna hvort einhver leki væri á samsetningum. Ekki var verið að úða efni á þakið, nema að því marki sem nauðsynlegt var til að prófa búnaðinn.
Áætlað er að vinna við úðun á þakinu fari fram á eftirfarandi dögum á milli 09:00 - 16:00, að því gefnu að veður leyfi:
Fimmtudaginn 11. júní
Laugardaginn 13. júní
Sunnudaginn 14. júní
Mánudaginn 15. júní
Gangi veðurspá eftir er gert ráð fyrir að verkinu ljúki á þessum dögum. Ef veður setur strik í reikninginn verður staðan metin að nýju eftir helgi.
Til öryggis eru íbúar og gestir við neðangreind húsnúmer vinsamlegast beðnir um að leggja bílum sínum utan þess svæðis sem merkt er á myndinni hér að neðan meðan á vinnu stendur:
- Melgerði 7, 9, 11 og 13
- Sunnugerði 3, 5b, 7, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 21 og 22
- Heiðarvegur 2, 4, 6, 8, 10 og 12
- Austurvegur 5, 7, 9, 10, 11 og 13
- bílastæði við grunnskólann

Við biðjumst velvirðingar á því að ekki hafi verið upplýst fyrirfram um prófanirnar í morgun og þökkum íbúum og gestum svæðisins fyrir skilninginn á meðan framkvæmdum stendur.
