Fara í efni
27.03.2026 Tilkynningar

Tilkynning vegna sorphirðu í Fjarðabyggð 23.–27. mars

Deildu

Vegna slæmrar veðurspár má gera ráð fyrir töfum á sorphirðu í Fjarðabyggð í vikunni 23.–27. mars. Í þessari viku er verið að hirða pappa og plast.

-Uppfært 29. mars-

Ekki náðist að ljúka sorphirðu á Fáskrúðsfirði í gær. Haldið verður áfram á morgun, mánudaginn 30. mars, og stefnt er að því að klára að losa pappa og plast.

-Uppfært 28. mars-

Sorphirða á Fáskrúðsfirði í dag, laugardaginn 28. mars

Sorphirða fer fram á Fáskrúðsfirði í dag, laugardaginn 28. mars.

Við minnum íbúa á mikilvægi þess að tryggja gott aðgengi að sorptunnum. Á vetrum ber húseigendum að hreinsa snjó frá sorpgeymslum og af þeirri leið sem flytja þarf sorpílát um innan lóðar.

Ef aðgengi að sorpskýlum eða sorpgeymslum er hindrað, verða tunnur ekki tæmdar.

Aðgengi að sorptunnum er á ábyrgð íbúa.


-Uppfært 27. mars-

Unnið verður að sorphirðu á Eskifirði í dag, föstudaginn 27. mars.

Mikilvægt er að íbúar tryggi gott aðgengi að sorptunnum svo sorphirða geti farið fram með eðlilegum hætti.


Veðurspáin gerir ráð fyrir töluverðum vindi og ofankomu og því er líklegt að ekki verði unnið við sorphirðu á þriðjudag, 24. mars, og mögulega einnig ekki á miðvikudag ef spáin gengur eftir.

Unnið verður að því að klára Norðfjörð í dag, en gera má ráð fyrir að sorphirða taki lengri tíma þar sem færð að tunnum getur verið erfið eftir veður undanfarinna daga. 

Mikilvægt er að íbúar tryggi gott aðgengi að sorptunnum svo hirða geti gengið sem best.