Fara í efni
05.06.2026 Tilkynningar

Tilkynning vegna þyrluumferðar í Neskaupstað

Deildu

Á næstu dögum má gera ráð fyrir nokkurri þyrluumferð í Neskaupstað vegna vinnu við ofanflóðavarnir.

Til stendur að ferja efni með þyrlu frá samsetningarsvæði við Naustahvamm að framkvæmdasvæðinu upp í fjalli. Áætlað er að flutningurinn með þyrlunni hefjist upp úr hádegi mánudaginn 8. júní og standi yfir til loka dags á þriðjudag.

Verktaki gerir ráð fyrir að þyrluflutningar á efnivið í uppsetningu upptakastoðvirkja fari síðan fram með um hálfs mánaðar millibili í sumar, eftir því sem framkvæmdum vindur fram og veðuraðstæður leyfa.

Öll umferð um neðangreint samsetningarsvæði er lokað fyrir aðra umferð í sumar og eru íbúar og vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar um lokun svæðisins.

Við þökkum fyrir sýnda þolinmæði og tillitssemi á meðan þessu mikilvæga öryggisverkefni miðar áfram.

Hægt er að fá frekri upplýsingar og koma með ábendingar á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is

Lokunin tekur til svæðis ofan við hesthúsin við Naustahvamm.