Fara í efni
Tilkynningar

Tilmæli til íbúa Stöðvarfjarðar

Deildu

Þar sem von er á miklu vatnsveðri þá er hætta á því að sú staða komi upp að vatnsgæði gætu spillst á Stöðvarfirði. Beina þeim tilmælum til íbúa að sjóða vatn í varúðarskyni. 

Ef íbúar verða varir við gruggugt neysluvatn eru það skýr merki um mengað neysluvatn. Sérstaklega skuli huga að viðkvæmum notendum (börn, eldra fólk og þau sem eru með viðkvæmt ónæmiskerfi) og ráðlegt sé að þeir hópar sjóði neysluvatnið þar til niðurstöður sýnatöku liggi fyrir. 

Heilbrigðiseftirlitið muni kanna það eftir helgi hvernig vatnsbólið hefur staðið af sér vatnsveðrið.