Fara í efni
02.01.2026 Tilkynningar

Tiltekt hafin eftir hátíðarnar

Deildu

Starfsfólk þjónustumiðstöðva er þessa dagana á ferðinni við að taka til eftir áramótin. Til að verkið gangi hratt og vel er mikilvægt að íbúar:

  • Komið flugeldarusli og jólatrjám við lóðamörk svo auðvelt sé að nálgast.
  • Tryggið að rusl og tré fjúki ekki 

Söfnun flugeldarusls

Hreinsun flugeldarusls er hafin og verður sinnt næstu daga.

Söfnun jólatrjáa

Eftir þrettándann hefst söfnun á jólatrjám. Vinsamlegast setjið trén við lóðamörk og tryggið að þau fjúki ekki.

Opnunartími móttökustöðva um helgina

  • Norðfjörður: kl. 10:00–13:00
  • Eskifjörður: kl. 14:00–17:00

Takk fyrir að hjálpa okkur að halda Fjarðabyggð snyrtilegri og öruggri eftir áramótin.