Vegna viðhaldsframkvæmda og steypuvinnu á einbreiðri brú yfir Tungudalsá í Fáskrúðsfirði verður Hringvegur (1) milli Stöðvarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar lokaður tímabundið mánudaginn 31. ágúst 2026.
Lokanir verða á eftirfarandi tímum:
- Kl 14:00 til 14:30
- Kl 15:00 til 15:30
Vegfarendur eru beðnir um að gera ráð fyrir töfum og skipuleggja ferðir sínar með hliðsjón af lokunum.
Við þökkum fyrir sýndan skilning og biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.
Vegagerðin
