Núna síðdegis, fimmtudaginn 27. ágúst, má gera ráð fyrir tímabundnum truflunum á vatnsrennsli á hluta Reyðarfjarðar vegna prófana á vatnslokum í dreifikerfinu.
Truflanirnar geta orðið í eftirfarandi götum:
- Brekkugerði
- Litlagerði
- Bakkagerði
- Vallargerði
- Ásgerði
- Sunnugerði
Unnið verður að prófunum seinni part dags og geta truflanir orðið á meðan á þeim stendur.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
