Fara í efni
05.01.2026 Tilkynningar

Varað við notkun flugelda

Deildu

Talsverðir gróðureldar kviknuðu í Neskaupstað, á Reyðarfirði, Breiðdalsvík og Djúpavogi um og í kringum áramótin. Talið er orsökina megi í öllum tilvikum rekja til flugelda. 

Þar sem snjóþekja er víða lítil og gróður þurr hvetur almannavarnanefnd Austurlands íbúa fjórðungsins og gesti til að gæta sérstaklega að skoteldanotkun í aðdraganda þrettándans. Sérstaklega er varað við svokölluðum sólum sem geta logað í nokkurn tíma eftir að þær lenda. Þarf ekki að orðlengja þá eldhættu sem af getur skapast, ekki síst í þéttbýli.

Höfum í huga, förum varlega.