Fara í efni
20.10.2026 Tilkynningar

Vatnslaust að hluta í Neskaupstað 21. október

Deildu

Vegna lekaviðgerðar á stofnlögn vatnsveitu verður lokað fyrir kalt vatn á hluta Neskaupstaðar miðvikudaginn 21. október frá kl. 08:00 til 17:00.

Lokunin nær meðal annars til G. Skúla, Tandrabergs, hafnarinnar, Nestaks, Haka og Olíudreifingar. Önnur hús á svæðinu geta einnig orðið vatnslaus. Svæðið sem lokunin nær til er afmarkað með grænu á meðfylgjandi korti.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.