Fara í efni
13.10.2026 Tilkynningar

Viðvörun vegna mikillar úrkomu 14. október - UPFÆRT-

Deildu

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun vegna úrkomu á morgun, miðvikudaginn 14. október milli kl. 06:00 – 20:00. Búist er við talsverðri eða mikilli rigningu. Úrkoma getur orðið mjög mikil um tíma og valdið vexti í ám og lækjum og getur einnig komið af stað grjóthruni eða skriðum. 

  • Í samráði við Veðurstofuna og almannavarnir fellur allt skólahald í Breiðdals- og Stöðvarfjarðaskóla niður. Hægt verður að bjóða upp á frístund á báðum stöðum. Skráningar þurfa að berast fyrir klukkan 08:00 í fyrramálið.
  • Samhliða úrkomu og vindi er varað við hárri sjávarstöðu. Eigendur skipa og báta við bryggjur eru því hvattir til að  huga að eigum sínum tímanlega.
  • Þá er íbúar hvattir til að huga að niðurföllum við hús sín og hreinsa frá þeim lauf og annað sem getur hindrað eðlilegt rennsli vatns.

    Íbúar eru hvattir til að fylgjast með nýjustu upplýsingum og viðvörunum á vef Veðurstofu Íslands.