Fara í efni
30.09.2026 Tilkynningar

Vinna við krapaflóðavarnir ofan grunnskólans á Fáskrúðsfirði

Deildu
Loftmynd af hlíðinni ofan grunnskólans á Fáskrúðsfirði. Rauður reitur sýnir staðsetningu grjótstíflunnar í farvegi ofan byggðarinnar.

Stefnt er að því að hefja vinnu við styrkingu grjótstíflu ofan grunnskólans á Fáskrúðsfirði í dag, 30. september. Áætlað er að framkvæmdum ljúki um 20. október.

Grjótstíflan verður styrkt með svokölluðu Spider-neti, bergboltum og strekkivírum. Meginhluti vinnunnar felst í borun fyrir bergfestum sem halda netinu á sínum stað. Í upphafi verks verður einnig notuð grafa til að fjarlægja grjót sem merkt er með rauðu á meðfylgjandi mynd. 

Grjótstífla í grónum farvegi. Rauðar merkingar sýna grjót efst á stíflunni og neðan hennar sem á að fjarlægja.
Grjótstíflan ofan grunnskólans á Fáskrúðsfirði verður styrkt með neti og bergfestum. Grjót sem verður fjarlægt í upphafi verks er merkt með rauðu.

Staðsetning framkvæmdasvæðisins er sýnd á meðfylgjandi loftmynd. Fólk sem á leið um svæðið er hvatt til að sýna aðgát meðan á framkvæmdum stendur.