Fara í efni
30.04.2026 Tilkynningar

Vinnuskóli Fjarðabyggðar 2026

Deildu

Vinnuskólinn býður 14 og 15 ára ára ungmennum vinnu í sumar  frá 9. júní til 14. ágúst.

Vinnuskólinn er opinn öllum ungmennum fædd á árunum 2011–2012 sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu. Ungmenni sem eiga lögheimili utan sveitarfélagsins geta sótt um leyfi til þátttöku en umsóknir þeirra verða teknar til greina út frá fjölda umsókna.

Í Vinnuskólanum fást nemendur við fjölbreytt verkefni sem snúa flest að umhirðu umhverfsins í Fjarðabyggð.

14 ára (árg. 2012): Getur valið um vinnu í fimm vikur. Vinnutími er frá 08:00- 12:00

 

15 ára (árg. 20011): Getur valið um vinnu í sex vikur - 5 vinnuvikur og 1 fræðsluvika.

 Vinnutími er frá 08:00- 12:00

Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2026. Ekki verður tekið á móti umsóknum eftir þann tíma.

Tekið er við umsóknum í Vinnuskólann í gegnum ráðningarvef Fjarðabyggðar með því að smella hér: https://starf.fjardabyggd.is/storf/viewjobonweb.aspx?jobid=4718

Athugið að sækja þarf um á nafni og kennitölu barns inná ráðningavefnum, en ekki kennitölu forráðamanna.

Nánari upplýsingar um Vinnuskólan og umsóknir í hann veitir Helga Björk Einarsdóttir, garðyrkjustjóri, á netfanginu helga.b@fjardabyggd.is