Fara í efni
13.04.2026 Tilkynningar

Oddsskarð – LOKAÐ í dag, mánudaginn 13. apríl

Deildu

Því miður verður lokað í Oddsskarði í dag.

Ástæðan er sú að vegna veikinda í mannskap og bilunar í troðara hefur ekki tekist að troða svæðið, og því er ekki unnt að opna brekkurnar með öruggum hætti.

Við vitum að þetta veldur vonbrigðum, ekki síst á svona fallegum degi, og biðjumst innilega velvirðingar á því. 

Öryggi gesta og aðstæður á svæðinu þurfa þó ávallt að vera í lagi áður en hægt er að opna.