mobile navigation trigger mobile search trigger
12.08.2015

100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi

Boðað hefur verið til sérstaks fundar í bæjarstjórn Fjarðabyggðar í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 13. ágúst 2015 á bæjarskrifstofunni Reyðarfirði og hefst kl. 16:00.  Eingöngu kvenbæjarfulltrúar munu sitja fundinn.

 

100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi

Á dagskrá fundarins verða m.a. umræður um stöðu kvenna í sveitarstjórnarmálum á landsvísu, jafnréttisáætlun Fjarðabyggðar 2013 - 2016 staða og framtíðarsýn, auk annarra mála.

Frétta og viðburðayfirlit