mobile navigation trigger mobile search trigger
26.01.2022

Álagning fasteignagjalda 2022

Álagningarseðlar fasteignagjalda í Fjarðabyggð 2022 hafa verið birtir á vefsíðunni island.is og á Íbúagátt Fjarðabyggðar.  Álagningarseðlar eru ekki sendir í pósti.Fasteignagjöldin verða innheimt í gegnum net- eða heimabanka.  Greiðsluseðlar verða ekki sendir út en hægt er að óska eftir heimsendum greiðsluseðlum með því að hafa samband í síma 470-9000 eða í gegnum heimasíðu Fjarðabyggðar, www.fjardabyggd.is

Álagning fasteignagjalda 2022

Fjármálasvið Fjarðabyggðar annast álagningu og innheimtu á fasteignaskatti, lóðaleigu, vatnsgjaldi, fráveitugjaldi og sorpgjöldum.  Fasteignagjöld ársins 2022, yfir 27.500 kr., greiðast nú með tíu jöfnum greiðslum 1. hvers mánaðar frá febrúar til  nóvember og eindagi greiðslu er síðasti virki dagur hvers mánaðar.  Gjalddagar voru 8 á árinu 2021 en eru nú 10 talsins.

Gjalddagi fasteignagjalda undir 27.500 kr. er 1. febrúar.

Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar, sem fengu afslátt af fasteignaskatti, fá einnig að óbreyttu afslátt af fasteignaskatti fyrir árið 2022 að teknu tilliti til tekjuviðmiða.  Eftir yfirferð Ríkisskattstjóra á skattframtölum elli- og örorkulífeyrisþega, framkvæmir Fjármálasvið breytingar á fasteignaskatti. Það þarf því ekki að sækja sérstaklega um afslátt þessara gjalda.  Við álagningu fasteignagjalda í janúar verður afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur ársins 2020. Þegar álagning vegna tekna ársins 2021 liggur fyrir sumarið 2022, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða allar breytingar tilkynntar bréflega í haust.

Skilyrði afsláttar eru að viðkomandi sé elli- eða örorkulífeyrisþegi, sé þinglýstur eigandi fasteignar og eigi þar lögheimili.  Einungis er veittur afsláttur vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.

Bæjarstjórn hefur ákveðið að tekjumörk elli-og örorkulífeyrisþega vegna afsláttar fasteignaskatts á árinu 2022 verði eftirfarandi:

Einstaklingur með tekjur allt að 5.588.880 kr. fá 100% afslátt og hlutfallslega þar til tekjur ná 7.391.165 kr.

Hjón og samskattað sambýlisfólk með tekjur allt að 8.488.797 kr. fá 100% afslátt og hlutfallslega þar til tekjur ná 10.145.250 kr.

Upphæð afsláttar er allt að 80.567 kr.  Afslátturinn er hlutfallslegur og reiknaður af fasteignaskatti viðkomandi eignar.

Fjármálasvið Fjarðabyggðar veitir allar upplýsingar varðandi álagningu og innheimtu fasteignagjalda í síma 470-9000. Gjaldskrá fasteignagjalda og reglur um afslætti má finna á heimasíðu Fjarðabyggðar. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is

Fjarðabyggð 26. janúar 2022

Snorri Styrkársson

fjármálastjóri Fjarðabyggðar

Frétta og viðburðayfirlit