mobile navigation trigger mobile search trigger
04.02.2021

Auglýsinga- og samstarfsamningur við Blakdeild Þróttar

Á dögunum var ritað undir auglýsinga- og samstarfssamning við Blakdeild Þróttar sem bæjarráð samþykkti á síðasta ári að gera við félagið. Samningurinn felur í sér að meistarflokkar Þróttar í karla- og kvennaflokki, auk 2. flokks karla og kvenna munu kenna sig við Fjarðabyggð og kynna nafn og merki sveitarfélagsins með ýmsum hætti í sinni starfsemi.

Auglýsinga- og samstarfsamningur við Blakdeild Þróttar
Frá undirritun samningsins í síðustu viku. Jón Björn Hákonarson og Sigríður Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Blakdeildar Þróttar, í bakgrunni má sjá leikmenn Meistarflokks kvenna

Um er ræða samskonar samning og í gildi er við Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar. Samningurinn felur í sér að blaklið félagsins munu hér eftir vera kynnt sem blakdeild Þróttar Fjarðabyggð, auk þess sem merki og nafn sveitarfélagsins verða sýnileg á búningum félagsins og á keppnisvelli.

Auglýsingagildi slíks samnings er ótvírætt enda hefur blaklið Þróttar verið um árabil  í fremstu röð blakliða á Íslandi, státar af fjölmörgum Íslands- og bikarmeistartitlum í greinni auk þess sem yngri flokkastarf Þróttar er öflugt og hefur skilað af sér mörgu af besta blakfólki á Íslandi.

Það var  Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri sem ritaði undir samninginn af hálfu Fjarðabyggðar. „Hið öfluga blakstarf sem Þróttur hefur rekið hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarinn ár, og félagið getur verið stolt af því starfi. Blaklið Þróttar hefur um árabil verið í fremstu röð í kvennaflokki og karlalið félagsins er einnig á fullri ferð“ sagði Jón Björn við undirritun samningsins.

„Fjarðabyggð er stolt af því öfluga íþróttastarfi sem finna má víðsvegar um sveitarfélagið, og það er okkur mikils virði að blakdeild Þróttar sé nú tilbúinn að stíga þetta skref, og kenna sig við sveitarfélagið. Það hefur ótvírætt auglýsingagildi fyrir okkur, og hjálpar okkur mikið við að koma nafni sveitarfélagsins, og því sem Fjarðabyggð stendur fyrir, enn frekar á kortið“  bætti Jón við að lokum.

Frétta og viðburðayfirlit