mobile navigation trigger mobile search trigger
02.11.2018

Bókun bæjarráðs Fjarðabyggðar um frumvarp til veiðigjalda.

Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega þeirri boðuðu aukagjaldtöku, í formi 10% hækkunar á heildartekjum útgerðar, sem lögð verði á uppsjávarstofna, umfram aðrar tegundir sjávarfangs, í frumvarpi um veiðigjöld sem nú er í meðförum Alþingis.

Bókun bæjarráðs Fjarðabyggðar um frumvarp til veiðigjalda.

Á fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar var eftirfarandi bókun samþykkt um frumvarp til veiðigjalda sem nú er í meðförum Alþingins.

Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega þeirri boðuðu aukagjaldtöku, í formi 10% hækkunar á heildartekjum útgerðar, sem lögð verði á uppsjávarstofna, umfram aðrar tegundir sjávarfangs, í frumvarpi um veiðigjöld sem nú er í meðförum Alþingis. Með því að hækka heildartekjur um 10% getur reiknistofn veiðigjalds hækkað allt að 50 til 60% sem þýðir í raun að skattstofn er í raun milli 46 til 66% á uppsjávartegundir en ekki 33% eins og boðað er á aðrar fisktegundir.

Í Fjarðabyggð starfa þrjú stór og öflug sjávarútvegsfyrirtæki sem hafa fjárfest mikið í uppbyggingu og skipakosti í tengslum við veiðar á uppsjávarafurðum. Þessi fyrirtæki eru máttarstólpar í Fjarðabyggð hvað varðar atvinnu, tekjur og samfélagslega uppbyggingu og leggja mikið til íslensk samfélags í formi skatta og verðmætasköpunar til útflutnings. Sé það vilji stjórnvalda að leggja á veiðigjöld þá hlýtur það að vera skýlaus krafa að jafnræði sé í slíkri skattlagningu og ekki tekinn út ein grein sjávarútvegs og lagt á hana aukin gjöld umfram aðrar að ógleymdu þeirri miklu óvissu sem nú ríkir varðandi stöðu loðnu- og makrílstofnsins.

Slíkt mun verða til þess að fjárfestingar og frekari uppbygging í uppsjávariðnaði muni dragast saman. Þá minnir bæjarráð á fyrri bókanir sínar um veiðigjöld og þá eðlilegu kröfu að veiðigjöld séu sanngjörn og í takt við afkomu sjávarútvegsins hverju sinni. Einnig ítrekar bæjarráð þá afstöðu sína að viðkomandi sjávarútvegssveitarfélög fái hlutdeild í veiðigjöldum í ljósi þeirra fjárfestinga sem viðkomandi sveitarfélög hafa lagt útí og hvaðan þessi útflutningsverðmæti koma.

Frétta og viðburðayfirlit