mobile navigation trigger mobile search trigger
28.09.2020

Breytingar vegna starfsloka bæjarstjóra Fjarðabyggðar

Í framhaldi af starfslokum Karls Óttars Péturssonar bæjarstjóra Fjarðabyggðar, sem tilkynnt var um nú í morgun, var eftirfarandi tillaga meirihluta Fjarðalista og Framsóknarflokks samþykkt á fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar í dag, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sat hjá við afgreiðsluna. 

Breytingar vegna starfsloka bæjarstjóra Fjarðabyggðar

Jón Björn Hákonarson tekur við starfi bæjarstjóra Fjarðabyggðar út kjörtímabilið og lætur um leið af embætti forseta bæjarstjórnar, formennsku í eigna-, skipulags og umhverfisnefnd og safnanefnd ásamt varaformennsku í bæjarráði.

Eydís Ásbjörnsdóttir lætur af formennsku í bæjarráði og verður forseti bæjarstjórnar og formaður eigna-, skipulags og umhverfisnefndar. Sigurður Ólafsson mun taka sæti sem formaður bæjarráðs í stað Eydísar Ásbjörnsdóttur og Pálína Margeirsdóttir mun taka sæti sem varaformaður í bæjarráði. Skipað verður í safnanefnd á næsta fundi bæjarráðs. Einar Már Sigurðarson mun taka sæti 1. varaforseta og  Sigurður Ólafsson 2. varaforseta.

Karli Óttari Péturssyni eru þökkuð góð störf og gott samstarf í þágu Fjarðabyggðar og óskað velfarnaðar.

Frétta og viðburðayfirlit