mobile navigation trigger mobile search trigger
17.01.2020

Fjarðabyggð á Mannamóti 2020

Fjarðabyggð tók þátt í ferðasýningunni Mannamót 2020 sem haldinn var í Kórnum í Kópavogi 16. janúar. Auk Fjarðabyggðar tóku fjölmörg fyrirtæki úr Fjarðabyggð og af öllu Austurlandi þátt í sýningunni.

Fjarðabyggð á Mannamóti 2020

Mannamót er árleg ferðasýning/kaupstefna sem haldinn er af Markaðsstofum landshlutanna og er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni.

Markmið og tilgangur viðburðarins er að skapa vettvang þar sem landsbyggðarfyrirtæki fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamóti gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá.

Frétta og viðburðayfirlit