mobile navigation trigger mobile search trigger
18.08.2016

Fyrsti starfsdagurinn runninn upp

Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri, afhenti Höllu Höskuldsdóttur, leikskólastjóra, formlega lykilinn að Eyrarvöllum í Neskaupstað í morgun. Fyrsti starfsdagur nýja leikskólans er í dag og var eftirvæntingin mikil.

Fyrsti starfsdagurinn runninn upp

Fyrsta skóflustungan var tekin fyrir liðlega einu og hálfu ári, í janúar 2014, og hefur byggingin leikskólans sótt vel fram.

Opnunarhátíð leikskólans verður laugardaginn 17. september og eru allir velkomnir i heimsókn af því ánægjulega tilefni. 

Frétta og viðburðayfirlit