mobile navigation trigger mobile search trigger
27.08.2020

Gangnaboð 2020

Á fundi landbúnaðarnefndar 20. ágúst 2020 var samþykkt eftirfarandi fyrirkomulag gangna í Fjarðabyggð. Landbúnaðarnefnd samþykkir að fjáreigendur verði gerðir ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon í, samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur. Fjallskilastjóri er Sigurður Baldursson.

Gangnaboð 2020

Landbúnaðarnefnd samþykkir að fjáreigendur verði gerðir ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon í, samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur. Fjallskilastjóri er Sigurður Baldursson.

Fyrstu göngur skulu fara fram á tímabilinu 4. – 28. september 2020. Seinni göngum skal vera lokið fyrir 18. október 2020. Fyrir 8. nóvember 2020 mun fjallskilastjóri láta kanna og smala þá eyðistaði þar sem hugsanlega er fjárvon. Kostnaður af þeim eftirleitum greiðist úr fjallskilasjóði, kr. 25.000.- pr. dagsverk, fjallskilasjóður er sveitasjóður. Jafnframt samþykkir landbúnaðarnefnd eftirfarandi tillögu, fyrir haustið 2020, að skiptingu fjallskiladeildarinnar í gangnasvæði og skulu göngur fara fram eins og áður segir. Tilgreindir umsjónaraðilar eru gangnaforingjar.

Mjóifjörður: Marsibil Erlendsdóttir er gangnastjóri norðanmegin í Mjóafirði að Reykjadal sunnanmegin. Hún hefur umsjón með fjallskilum á fyrrgreindu svæði og samkvæmt samkomulagi þá munu Vallamenn smala sínu fé í Mjóafirði. Á svæðinu frá Nípu að Reykjadal skal fjallskilastjóri hafa yfirumsjón með smölun. Axel Jónsson skal leggja til 2 menn og Fjarðabyggð 3 dagsverk til smölunar á svæðinu frá Nípu að Reykjadal.

Norðfjarðarsvæði: Axel Jónsson og Leifur Jónsson skulu sjá um fjallskil frá Nípu að Fannardalsá. Guðröður Hákonarson og Axel Jónsson sjá um fjallskil í Fannardal, innan Fannardalsár, bæði norðan og sunnan Norðfjarðarár. Á Hólaströnd sér um fjallskil Valgeir Guðmundsson. Þórður Júlíusson skal sjá um fjallskil í Seldal og Staðarhálsi. Sigfinnur Karlsson, Önundur Erlingsson, Jón Þór Aðalsteinsson, Viðar Guðmundsson og Magnús Guðnason skulu sjá um fjallskil sunnan Norðfjarðarár, í Oddsdal og Hátúns.

Hellisfjarðarsvæði: Lagt er til að allt Hellisfjarðarsvæðið sé smalað samdægurs, gangnastjóri er Viðar Guðmundsson. Tillaga að dagsetningu er á ábyrgð gangnastjóra. Lagt er til að Önundur Erlingsson og Sigfinnur Karlsson leggi til 5 menn, Sjöfn Gunnarsdóttir leggi til 2 menn, Viðar Guðmundsson leggi til 2 menn og Halldór Jóhannsson leggi til 2 menn.

Eskifjarðarsvæði: Halldór Jóhannsson er gangnastjóri og hefur umsjón með fjallskilum fyrir utan Hrafnadal og út úr eins og þörf er á, þó ekki í Viðfirði og Sandvík. Verði vart við fé í Viðfirði eða Sandvík, þá verður gerður út leiðangur til að ná í það. Magnús Guðnason hefur umsjón með fjallskilum frá Bleiksá að Helgustaðaá. Sjöfn Gunnarsdóttir hefur umsjón með fjallskilum í Helgustaðadal og Hrafnadal.

Sunnan varnarlínu í Reyðarfirði að Stöðvardal: Munu fjáreigendur sjá um fjallskil eins og verið hefur. Gangnastjórar á svæðinu eru Sigurður Baldursson og Ármann Elísson.

Stöðvardalur inn af Stöðvarfirði: Venja er að smala Stöðvardal aðra helgina í septembermánuði og hið minnsta séu tíu smalar til verksins. Fyrirkomulag verði eftirfarandi: 3-4 fari upp frá Gilsá og þar yfir hjá Jökultindi, 3 fari upp Jafnadalinn séu þar í fyrirstöðu í Lakaskarðinu og hreinsi síðan Álftafellið, 2-3 fari upp í Gunnarsskarð Breiðdalsmegin komi þar yfir og mæti að hluta þeim sem koma frá Gilsá. Mikilvægt er að það séu einhverjir í fyrirstöðu við bæði réttina í Stöðvardal og upp í fjalli. Fyrirstöðu skipuleggja þeir er koma frá Gunnarsskarði. Gangnastjóri er Guðný Harðardóttir.

Norðurdalur í Breiðdal: Fjáreigendur munu sjá um fjallskil eins og verið hefur. Gangnastjóri á svæðinu er Guðný Harðardóttir.

Heydalafjall í Breiðdal: Fjáreigendur munu sjá um fjallskil eins og verið hefur. Gangnastjóri á svæðinu er Guðný Harðardóttir.

Breiðdalur að sunnanverðu: Fjáreigendur munu sjá um fjallskil eins og verið hefur. Gangnastjóri er Sigurður Max Jónsson.

Breiðdalur að norðanverðu: Fjáreigendur munu sjá um fjallskil eins og verið hefur. Gangnastjóri er Rúnar Ásgeirsson. 

Gildir fyrir öll fjallskilasvæði: Þeir aðilar sem tilgreindir eru sem gangnaforingjar á sínu svæði geta kallað til aðra sem eiga fjárvon á þeim svæðum sem þeim eru falin. Landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar hefur komið á þeirri vinnureglu að fjáreigendur eru ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon á samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur. Fjallskil á svæðinu frá Bleiksá að Hjálpleysuá að sveitafélagsmörkum við Fljótsdalshérað, verði framkvæmd af fjáreigendum á Völlum í samráði við fjallskilastjóra Fjarðabyggðar.

Gangnarof telst það vera ef gangnamenn; eru óhæfir eða vanbúnir til gangna, óhlýðnast gangaforingja, vanrækja fjallskil og eða mæta ekki til gangna án þess að tilkynna forföll. Gangnaforingja er heimilt að sekta fyrir gangnarof sem samsvarar allt að einu og hálfu dagsverki sbr. fjallskilasamþykkt sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

Hver bóndi, eða umráðamaður jarðar, er skyldur til að hirða kindur sem finnast á heimalandi hans eftir að fjallskilum er lokið og tilkynna það eigendum sé það innansveitarfé en fjallskilastjóra sé það utan sveitar.

Bréf sent öllum fjáreigendum í Fjarðabyggð: Gangnaboð 2020.pdf

Fh. Landbúnaðarnefndar

Anna Berg Samúelsdóttir

Umhverfisstjóri

Frétta og viðburðayfirlit