mobile navigation trigger mobile search trigger
24.03.2021

Hákon Hansson hlýtur Landstólpan

Hákon Hansson, dýralæknir og fyrrverandi oddviti á Breiðdalsvík, var á mánudag heiðraður af Byggðastofnun þegar hann hlaut Landstólpann, samfélagsviðurkenningu stofnunarinnar. Landstólpinn er veittur einstaklingi, fyrirtæki eða hópi, fyrir viðvarandi starf eða framtak sem vakið hefur jákvæða athygli á byggðamálum, landsbyggðinni í heild, eða einhverju tilteknu byggðarlagi og þannig aukið veg viðkomandi samfélags.

Hákon Hansson hlýtur Landstólpan
Frá afhendingu Landstólpans sl. mánudag. F.v. Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, Hákon Hansson, og Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar

Hákon Hansson er fæddur á Höfn í Hornafirði árið 1950 en flutti til Kópavogs ásamt fjölskyldu sinni fimm ára gamall. Hann er sonur hjónanna Bjarkar Hákonardóttur og Hans Jóhannssonar sem bæði eru látin.

Hákon hefur lengst af starfað sem dýralæknir en áhugi á dýralækningum kom snemma í ljós og eftir útskrift úr Menntaskólanum í Hamrahlíð fór Hákon í nám í dýralækningum til Þýskalands.  Að námi loknu vann Hákon hjá dýralæknaþjónustu í Norður-Þýskalandi en flutti svo austur á land og settist að á Breiðdalsvík árið 1977 þegar hann tók við nýstofnuðu embætti héraðsdýralæknis á suðurfjörðum Austfjarða. Hann sinnti embættinu þar til það var lagt niður árið 2011 og var eftir það sjálfstætt starfandi dýralæknir þar til hann hætti formlega um síðustu áramót eftir 44 ára feril.

Hákon var alla tíð ákaflega vel liðinn sem dýralæknir og reyndist traustur vinur margra þeirra ungu dýralækna sem komið hafa austur síðustu ár og áratugi. Bændur hafa lýst honum sem einstaklega óeigingjörnum, ósérhlífnum, og hjálpsömum dýralækni sem sýndi mikinn skilning þegar á reyndi. Ekki skipti máli hvort menn hefðu samband við Hákon að nóttu til eða degi í sauðburði, ávallt hafi hann verið til þjónustu reiðubúinn.

Hákon hefur alla tíð látið sig atvinnu- og samfélagsmál í Breiðdal varða. Hann var um tíma stjórnarformaður Hraðfrystihúss Breiðdælinga á árunum 1983-1987 og formaður stjórnar kaupfélagsins á árunum 1978 til 1985. Hann er einn af forvígismönnum Breiðdalsseturs, situr þar í stjórn og hefur verið formaður um árabil. Hann vann ötullega að því að borkjarnasafn Náttúrufræðistofnunar Íslands yrði flutt til Breiðdalsvíkur árið 2017 og hann var ein helsta driffjöðurin þegar vinna hófst við að koma upp Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Breiðdalsvík sem nú er orðið að veruleika.

Hákon var persónukjörinn oddviti Breiðdalshrepps á árunum 2014 – 2018 sem segir auðvitað talsvert um stöðu hans í samfélaginu, en þetta voru að mörgu leyti mjög erfið ár í sögu Breiðdalshrepps. Breiðdalshreppur var eitt fyrsta byggðarlagið til að taka þátt í verkefnum Byggðastofnunar brothættar byggðir.  Hákon kom þar fram af festu sem leiðtogi heimamanna.  Hann hefur jafnan verið vakinn og sofinn yfir hagsmunum síns byggðarlags og ekki hikað við að beita sér þegar þess hefur þurft fyrir velferð þess og hagsmunum íbúa.  Það er samdóma álit allra sem rætt er við að Hákon er ein meginstoðin í samfélaginu í og við Breiðdal. Menn nota orð eins og „máttarstólpi“ eða þess vegna „aðalgaurinn“ til að lýsa honum en eitt er víst að hann tæki ekki undir slíkt sjálfur.

Það er von Byggðastofnunar að viðurkenning sem þessi gefi jákvæða mynd af landsbyggðunum og af starfi stofnunarinnar. Viðurkenningin er hvatning, hugmyndin að baki henni er að efla skapandi hugsun og bjartsýni.  Óbilandi bjartsýni og jákvæðni er smitandi og mættum við öll taka það okkur til fyrirmyndar.

Fjarðabyggð óskar Hákoni Hanssyni til hamingju með þessa frábæru viðurkenningu.

Frétta og viðburðayfirlit