mobile navigation trigger mobile search trigger
14.01.2022

Hertar sóttvarnaraðgerðir 15. janúar– áhrif á þjónustu Fjarðabyggðar

Ríkisstjórnin kynnti nú í dag hertar sóttvarnaraðgerðir sem miða að því að stemma stigu við hraðri útbreiðslu COVID – 19 á Íslandi. Hér að neðan má sjá hvaða áhrif þetta mun hafa á þjónustu sveitarfélagsins. 

Hertar sóttvarnaraðgerðir 15. janúar– áhrif á þjónustu Fjarðabyggðar
  • Bæjarskrifstofa: Afgreiðsla bæjarskrifstofunnar verður áfram opin, en fjöldi starfsmanna á staðnum verður takmarkaður og hluti starfsmanna dreifðir á aðrar starfsstöðvar. Þess vegna er fólk hvatt til að nýta sér rafrænar lausnir til samskipta s.s. með símtölum í síma 470 9000,  í gegnum íbúagátt, með tölvupósti, eða í gegnum ábendingakerfið á vef Fjarðabyggðar.
  • Sundlaugar, íþróttamannvirki og Oddsskarð: Sundlaugar, líkamsræktarstöðvar og Skíðasvæðið í Oddsskarði verður áfram opið en þessum stöðum er heimilt að taka við 50% af leyfðum hámarksfjölda skv. starfsleyfi.
  • Grunnskólar: Þær aðgerðir sem kynntar hafa verið munu ekki hafa áhrif á starfsemi grunnskóla umfram það sem nú er. Þurfi að grípa til sértækra aðgerða í skólastofnunum er foreldrum tilkynnt það sérstaklega.
  • Leikskólar: Þær aðgerðir sem kynntar hafa verið munu ekki hafa áhrif á starfsemi grunnskóla umfram það sem nú er. Þurfi að grípa til sértækra aðgerða í skólastofnunum er foreldrum tilkynnt það sérstaklega.

Þessar ráðstafanir taka gildi á miðnætti þann 14. janúar og gilda til og með 2. febrúar. Reglurnar má kynna sér á vef Stjórnarráðsins með því að smella hér. Ef frekari breytingar verða á reglunum eða þjónustu Fjarðabyggðar á næstu dögum verður það kynnt sérstaklega.

Ef frekari breytingar verða á reglunum eða þjónustu Fjarðabyggðar verður það kynnt sérstaklega.

Frétta og viðburðayfirlit