mobile navigation trigger mobile search trigger
02.09.2023

Hinsegin íþróttafræðsla í Fjarðabyggð

Í septembermánuði mun Sveinn Sampsted, íþróttafræðingur hjá Samtökunum 78, ferðast um Fjarðabyggð með fræðsluna Hinsegin og íþróttir. Fræðslan er fyrir alla iðkendur eldri en 13 ára og allt fólk sem kemur að íþróttastarfi í sveitarfélaginu með einhverjum hætti. Fræðsluátakið er hluti af samstarfssamningi Fjarðabyggðar við Samtökin 78.

Hinsegin íþróttafræðsla í Fjarðabyggð

Byggir á íslenskum rannsóknum

Sveinn hefur rannsakað upplifun hinsegin fólks í íþróttum á Íslandi (sjá hér) og byggir fræðslan til dæmis á þeirri rannsókn. Fræðslan hefur hlotið afar góðar viðtökur hjá þeim fjölmörgu íþróttafélögum sem hana hafa sótt en þó fræðslan byggi alltaf á sama grunni þá er hver fræðsla sérsniðin að hverjum hópi fyrir sig.

Fræðsla fyrir iðkendur, foreldra, forráðafólk, þjálfara og  stjórnarfólk íþróttafélaga- og deilda

Fræðslan fer fram í Egilsbúð Neskaupstað, Miðvikudaginn 6. september, Skrúð Fáskrúðsfirði, fimmtudaginn 7. september og Valhöll Eskifirði, föstudaginn 8. september. Fræðslan hefst klukkan 17:00.

Streymt verður frá fræðslunni í Egilsbúð. Hægt er að tengjast fundinum í streymi hér.

Fjarðabyggð hvetur allt fólk sem hefur áhuga eða aðkomu að íþróttum í sveitarfélaginu til þess að mæta á fræðslu, hvort sem er í persónu eða í gegnum netið.

Frétta og viðburðayfirlit