mobile navigation trigger mobile search trigger
01.07.2020

Hjólabrettanámskeið í Fjarðabyggð

Hjólabrettaskóli Reykjavíkur í samstarfi við Albumm.is heldur hjólabrettanámskeið á Reyðarfirði (fyrstu tvo dagana) og í Neskaupstað (síðasta daginn) fyrir krakka dagana 7. 8. og 9. júlí. Einnig fara allir saman í sund þann 9. júlí, slútt námskeiðsins og fjör!

Hjólabrettanámskeið í Fjarðabyggð

Öllu verður til tjaldað en það eru þeir Steinar Fjeldsted og Dagur Örn sem annast kennsluna en þeir hafa mikla reynslu af hjólabrettum og hjólabrettakennslu.

Námskeiðið er mjög fljótt að fyllast, fyrstur skráir fyrstur fær!  Námskeiðin eru fyrir byrjendur og lengra komna en skipt verður í hópa eftir getu. Á námskeiðinu verður farið yfir öll helstu grunnatriði hjólabrettaíþróttarinnar eins og t.d. ýta sér, hvernig á að standa, snúa við, líkamsstöður og Ollie (hoppa) svo fátt sé nefnt. En fyrir þá sem eru lengra komnir verður farið í ögn flóknari hluti eins og t.d. Kickflip, Shuvit og jafnvel 360 flip svo fátt sé nefnt!

Á námskeiðinu er hjálmaskilda en einnig eru allir hvattir til að koma með þær hlífar sem viðkomandi á. Gott er að eiga hjólabretti en við erum með nokkur lánsbretti sem hægt er að fá lánað.

Námskeiðin byrja kl 13:00 og standa til kl 14:30 og eru 3 skipti, 7. 8. og 9. júlí. Námskeiðið kostar 11.900 kr á mann og fer skráning fram á hjolabrettaskoli@gmail.com og í síma 768-8606, nafn og kennitala barns þarf að fylgja skráningu sem og nafn og símanúmer forráðamanns.

Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Albumm.is með því að smella hér

Frétta og viðburðayfirlit