mobile navigation trigger mobile search trigger
26.05.2019

Hreyfivikan í Fjarðabyggð

Fjölbreytt og ýtarleg dagskrá 26.maí - 2.júní

Hreyfivikan í Fjarðabyggð

UMFÍ hefur frá árinu 2012 tekið þátt í Evrópskri lýðheilsuherferð undir nafninu Now We Move eða Hreyfiviku UMFÍ. Markmið verkefnisins er að að fá hundrað miljónir fleiri Evrópubúa til að hreyfa sig reglulega fyrir árið 2020. Rannsóknir sína að einungis þriðjugugur íbúa í Evrópu hreyfa sig reglulega. Jafnframt er það markmið verkefnisins að kynna kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu og íþróttum reglulega. UMFÍ tekur verkefnið sem langhlaup og hvetur alla til að finna sína uppáhalds hreyfingu og stunda hana reglulega eða að minnsta kosti í 30 mínútur daglega.

Fjarðabyggð hefur undanfarin ár tekið þátt bæði með því að skipuleggja viðburði og hvatt einstaklinga og íþróttafélög í sveitarfélaginu til að taka þátt. Dagskráin í ár er glæsileg en athugið að það er aldrei of seint að bæta inn verkefnum og svo auðvitað hvetjum við alla til að taka þátt!

Viðburðir alla vikuna

Stefánslaug Norðfirði - Sundkeppni sveitarfélaga
Alla vikuna verður hægt að skrá þá kílómetra sem þú syndir í Stefánslaug sem verða svo teknir saman í lok hvers dags fyrir sig. Staðan er svo uppfærð eftir hvern dag. Nú er spurning hvort Neskaupstaður geti skákað öðrum byggðalögum á landinu sem mesti sundstaður landsins?

Sundlaug Eskifjarðar - Sundkeppni sveitarfélaga 
Alla vikuna verður hægt að skrá þá kílómetra sem þú syndir í Sundlaug Eskifjarðar sem verða svo teknir saman í lok hvers dags fyrir sig. Staðan er svo uppfærð eftir hvern dag. Nú er spurning hvort Eskifjörður geti skákað öðrum byggðalögum á landinu sem mesti sundstaður landsins?

Líkamsrækt Reyðarfjarðar - Þol og styrkir – hópatímar í spinningsal
Boðið verður upp á fría "Þol og Styrk" tíma í spinningsalnum í Íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar. Öllum er frjálst að koma á meðan húsið leyfir. Endilega kíkið við og takið þátt í skemmtilegum hópatímum. Samtals verða átta tímar í boði kl. 17:30.20. - 23. Maí og 27. - 30. maí. Kennari verður Anna Berg.

Frábær dagskrá á Fáskrúðsfirði* alla vikuna

Sunnudagurinn 26. maí

Í Neskaupstað:
16:00 Skokk með Jóa Tryggva
Skemmtiskokk fyrir byrjendur og lengra komna. Farið verður af stað frá sundlauginni. Tilvalið að kíkja saman í pottinn á eftir. Stefánslaug.
17:00 Strandblak fyrir 16 ára og eldri

Mánudagurinn 27. maí

Í tilefni af byrjun Hreyfiviku UMFÍ býður Fjarðabyggð öllum sem vilja frítt í sund og líkamsrækt í Íþróttamiðstöðvum Fjarðabyggðar mánudaginn 27. maí

Opið er í Íþróttamiðstöð Neskaupstaðar/Stefánslaug frá kl. 06:00 - 20:00
Opið er í Íþróttamiðstöð Eskifjarðar frá kl. 06:00 - 20:00.
Opið er í Íþróttamiðstöð Reyðarfjarðar frá kl. 06:00 - 20:00
Opið er í Sundlaug Fáskrúðsfjarðar frá kl. 16:00 - 19:00
Opið er í Sundlaug Stöðvarfjarðar frá kl. 13:00 - 19:00
Opið er í Líkamsræktarstöðinni í Breiðdal frá kl. 16:00 - 19:00

Á Eskifirði
Syndum skriðsund saman! Skriðsund fyrir fullorðna með Ingunni. Það er frítt í sund og Ingunn Eir Andrésdóttir, sundþjálfari, býður upp á ráðgjöf fyrir þá sem þurfa, farið yfir skriðsundsnúninga og öndun.

Á Fáskrúðsfirði
Kl. 06:00 Spinning með Öddu í Glaðheimum, gengið inn að neðanverðu. (12 hjól)
Kl. 08:00 Sibbusund í sundlaug (Hámark 20) skráning í sundlaug í s. 475-9070
Kl. 14-15 Eldri borgarar velkomnir í tækjasal og fá leiðsögn sjúkraþjálfara á tæki og með æfingar.
Kl. 17:30 Yoga hjá Margréti í gamla sal, gengið inn að neðanverðu. Gott að koma með dýnu.
Kl. 19:00 Vatnsleikfimi hjá Fjólu (Hámark 20) Skráning í síma 773-8816
Kl. 20:00 Frisbígolf, farið yfir leikreglur. Mæting við teigstaur 1 við íþróttahús.

Í Neskaupstað
16:00 Strandblak fyrir 7. – 10 bekk
Æfing og skemmtimót - Strandblaksvöllur.

16:30-17:00 Aqua Zumba
Aqua Zumba með Gunnu Smára í Stefánslaug.

20:00 Kvenna-fótbolti
Allar konur velkomnar óháð getu. Gervigrasvöllurinn.

Þriðjudagur 28. maí

Á Fáskrúðsfirði
Kl. 06:00 Spinning með Öddu (12 hjól)
Kl. 17:30 Spinning með Hrefnu (12 hjól)
Kl. 17:30 Ringó á strandblakvelli með Elsu
Kl. 18:00 Fjöruhreinsun með Göngufélagi Suðurfjarða, mæting við áhaldahús.
Kl: 19:00 Ganga inn á Kirkjuból og léttar æfingar á leiðinni með Fjólu. Mæting við tjaldstæði.

Í Neskaupstað
12:00 Ganga með Rögnu Dögg
Mæting við tjaldstæðið. Hægt verður að velja um tvö erfiðleikastig. Í upphafi göngu verður létt spjall um ávinning þess að hreyfa sig og stunda útivist. Eldri borgarar eru sérstaklega hvattir til að mæta.
17:30 Boccianámskeið
Námskeið á vegum ÚÍA í boccia og ringo. Nánar auglýst síðar.

Miðvikudagur 29. maí

Á Fáskrúðsfirði
Kl. 17:00 Stöðvþjálfun í gamla íþróttasal.
Kl. 19:00 Ganga upp að fossi í Gilsá og niður að sjó með Fjólu. Mæting við Gilsá.

Í Neskaupstað
16:15 Líkamsræktartími fyrir byrjendur sem og lengra komna
Léttar styrktar og þolæfingar sem allir ráða við. Mæting í gamla Nesprent, Nesgata 7A.
17:10 Jóga fyrir byrjendur sem og lengra komna
Farið verður í grunnstöðurnar, öndun og slökun. Mæting í gamla Nesprent, Nesgata 7A.
18:00-19:00 Leikir fyrir börn og fullorðna með Rögnu Dögg
Hittumst á Marbakkanum og förum í gömlu góðu leikina saman.


Fimmtudagur 30. maí - Uppstigningardagur

Heilsudagur í Nesskóla Neskaupstað

Heilsu og lífsstílsdagur verður haldinn í Neskaupstað á uppstigningardag. Almenningi býðst að koma í heilsufarsmælingu um morguninn. Formleg dagskrá hefst klukkan 12:00. Tvær magnaðar konur munu vera með erindi og auk þess verður kynning á Heilsueflandi Fjarðabyggð og verkefninu Líf og heilsa. Dagurinn er hugsaður sem hvatning til okkar allra að huga vel að heilsunni og lífsstílnum. Andrúmsloftið verður allt jákvætt og hvetjandi :-)
Viðburðurinn er ókeypis

Dagskrá:
9:30 - 11:30: Fólki er boðið að kíkja við og fá heilsufarsmælingu s.s. blóðþrýsting, blóðsykur og blóðfitu (heildarkólestaról)
12:00 – Dagskrá hefst – kynning á verkefninu Líf og heilsa. Hrönn Grímsdóttir
12:15 – Bjarki Ármann Oddsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi segir frá verkefninu Heilsueflandi Fjarðabyggð og Hreyfiviku UMFÍ
12:30 – Sigrún Þuríður Geirsdóttir. Þegiðu og syntu - Leiðin að Ermarsundinu. Sigrún var fyrst kvenna til að synd Ermarsundið og segir hér frá reynslu sinni og hvernig við getum unnið að markmiðum okkar.
13:30 – Kaffi
13:50 – Jóga og hugleiðsla. Hrönn Grímsdóttir jógakennari.
14:00 – Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur. Mannrækt - heildræn nálgun í næringu og heilsu. Elísabet fjallar um hvernig við getum bætt lífsstíl okkar á einfaldan hátt án þess að auka streituna í daglegu lífi.
15:10 - Dagskrá lýkur
15:30 Sjósund fyrir þau sem hafa áhuga á að prófa að dýfa tánum í sjóinn. Reyndir sem óreyndir hvattir til að koma. Sigrún verður á staðnum og leiðbeinir.

Á Fáskrúðsfirði
Kl.13:00 Frjálsíþróttamót á Búðagrund. Keppt í hinum ýmsu greinum.
Kl.16:30 Spinning með Hrefnu (12 hjól)


Föstudagurinn 31. maí

Það verður Metabolic æfing á æfingarsvæðinu fyrir utan sundlaugina á Eskifirði. Mæli eindregið með að fólk hópi sig saman og taki aðeins á því fyrir helgina. Álagið í metabolic er hannað til að aðlagast öllum einstaklingum, þannig ekki vera hrædd við að mæta þó þið séuð ekki í mikilli þjálfun. Þessi æfing er aðallega sett upp til að hafa gaman og koma líkamanum aðeins af stað. Það verður skipulögð upphitun, æfing og teygjur ásamt smá finisher eftir æfingu. Endilega látið vita ef þið komið og látið orðið berast. (ef það er annar tími á föstudeginum sem hentar betur en hádegið er ég opinn fyrir tímabreytingu). Frítt inn í boði Heilsueflandi Samfélags í Fjarðabyggð.

Heilsuganga í hádeginu á föstudaginn 31. maí á Reyðarfirði, kl. 12:30 gengið er frá Molanum
Þóroddur Helgason fræðslustjóri Fjarðabyggðar mun bjóða öllum þeim sem vilja í klukkustundar langa göngu í hádeginu í tilefni af Hreyfiviku UMFÍ. Stefnan er sett á að ganga upp að Búðaránni auk þess að fræðast um Reyðarfjörð og nágrenni. Allir eru velkomnir gengið verður frá Molanum. (á eftir að staðfesta)

Á Fáskrúðsfirði
Kl. 06:00 Spinning með Öddu
Kl. 09:00 Eldri borgarar geta fengið kennslu og leiðsögn sjúkraþjálfara í tækjasal líkamsræktarinnar á Fáskrúðsfirði.

• *Allir hreyfiviðburðirnir Hreyfivikunnar á Fáskrúðsfirði eru ókeypis
• Skráning í Spinning og stöðvaþjálfun áfacebook síðunni undir "spinning og stöðvaþjálfun"
• Café Sumarlína verður með heilsumatseðill þessa viku sem gildir frá kl. 11:00. Sjá nánar á heimasíðu þegar nær dregur.
• Labr'i verður með vegan- og heilsurétti á matseðli þessa viku frá kl 12:30. Sjá nánar á heimasíðu þegar nær dregur.
Frekari upplýsingar vegna dagskrárinnar á Fáskrúðsfirði veitir Hrefna Eyþórsdóttir í s. 868-6754 eða gegnum facebook

Hvetjum fólk til að taka þátt í spennandi dagskrá sjómannadagshelgarinnar.

Laugardaginn 1. júní

Fjarðabyggð spilar gegn Vestra á Eskifjarðarvelli kl. 14:00 í 2. deild karla. Hvetjum alla til að mæta og styðja sitt lið!

Sunnudagurinn 2. júní

Leiknir spilar gegn Þrótti Vogum í Fjarðabyggðarhöllinni kl. 14:00 í 2. deild karla. Hvetjum alla til að mæta og styðja sitt lið!

Fleiri myndir:
Hreyfivikan í Fjarðabyggð

Frétta og viðburðayfirlit