mobile navigation trigger mobile search trigger
23.11.2015

Íslandsmót haust í 3. og 5. flokki í blaki

Um helgina fór fram í Neskaupstað Íslandsmót haust í blaki fyrir 3. og 5.flokk. Um 160 keppendur öttu kappi og var stemmningin góð.  Tuttugu og fimm lið tóku þátt í mótinu en Þróttur Neskaupstað átti tíu af þeim og næst flest lið á mótinu átti Huginn frá Seyðisfirði sem var með fimm lið.

Íslandsmót haust í 3. og 5. flokki í blaki
Fín þátttaka var í 3. flokki en spilað var í A og B riðli 3.flokks kvenna og fimm lið tóku þátt í 3.flokki karla.
Aðeins mættu tvö lið utan Austurlands, til leiks í 5.flokki.
Úrslit mótsins má sjá hér og einnig má sjá myndir af mótinu á Facebook síðu deildarinnar:  

Frétta og viðburðayfirlit