mobile navigation trigger mobile search trigger
01.11.2016

Minjavernd heiðruð fyrir framúrskarandi framlag til samfélagsins

Fjarðabyggð veitti nýlega Minjavernd heiðursviðurkenningu fyrir endurreisn Frönsku húsanna á Fáskrúðsfirði. Hér má sjá Þröst Ólafsson, stjórnarformann og Þorstein Bergsson, framkvæmdastjóra ásamt Páli Björgvini Guðmundssyni, bæjarstjóra, af því tilefni.

Minjavernd heiðruð fyrir framúrskarandi framlag til samfélagsins

Afhending fór fram á l´Abri, veitingastaðnum á jarðhæð Franska spítalans, en auk þess sem Minjavernd var heiðruð fyrir framúrskarandi framlag til samfélagsins, hlaut Þorsteinn einnig viðurkenningu fyrir framlag sitt, en hann stýrði verklegum framkvæmdum á stað í þau þrjú ár, sem endurgerð húsanna stóð yfir.

Viðurkenningunni fylgdi skjöldur Fjarðabyggðar úr gleri eftir eskfirsku glerlistakonuna Katrínu Guðmundsdóttir. Þá var Þresti og Þorsteini færð að gjöf nýútkomin bók Smára Geirssonar Stórhvalaveiðar við Ísland til 1915.

Minjavernd er hlutafélag í eigu ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og sjálfseignarstofnunarinnar Minja. Markmið starfseminnar er að stuðla að varðveislu mannvirkja og mannvistarleifa hvarvetna á Íslandi.

Fleiri myndir:
Minjavernd heiðruð fyrir framúrskarandi framlag til samfélagsins
Þröstur Ólafsson með bók Smára Geirssonar um stórhvalaveiðar á Íslandi. Á vinstri hönd hans stendur Þorsteinn Bergsson og Páll Björgvin á þeirri hægri.

Frétta og viðburðayfirlit