mobile navigation trigger mobile search trigger
15.09.2020

Menningarverðlaun SSA

Sambands sveitarfélaga á Austurlandi óskar eftir tilnefningum til Menningarverðlauna SSA. Verðlaunin eru veitt einstaklingi, stofnun eða félagasamtökum á Austurlandi fyrir eftirtektarvert framtak á sviði menningar á undanförnum árum/áratugum eða einstaks menningarafreks sem er öðrum fyrirmynd. Verðlaunin eru í formi verðlaunafjár að upphæð 250.000 kr og heiðursskjals sem afhent er á haustþingi SSA.

Menningarverðlaun SSA

Tilnefningu skal fylgja stutt greinargerð um viðkomandi einstakling, stofnun eða félagasamtök þar sem tilnefningin er rökstudd. Tilnefningar án rökstuðnings eru ekki teknar gildar. Allir hafa rétt á að senda inn tilnefningar. Sjá nánar á heimasíðunni www.ssa.is

Skilafrestur tilnefninga er til 28. september 2020 um netfangið asdis@austurbru.is 

Frétta og viðburðayfirlit