mobile navigation trigger mobile search trigger
16.05.2019

Menntamálastofnun og Fjarðabyggð gera með sér samstarfssamning um snemmtæka íhlutun og læsi í leikskóla

Í gær, miðvikudaginn 15. maí undirrituðu Menntamálastofnun og Fjarðabyggð samstarfssamning um að vinna saman að innleiðingu á snemmtækri íhlutun varðandi málþroska og læsi barna í Fjarðabyggð.

Menntamálastofnun og Fjarðabyggð gera með sér samstarfssamning um snemmtæka íhlutun og læsi í leikskóla

Verkefnið er unnið út frá hugmyndum og í samræmi við áherslur sem settar voru fram í  Þjóðarsáttmála um læsi 2015 og byggist á þróunarverkefni Ásthildar Bj. Snorradóttur. Markmið þess er að öll börn í leikskólum Fjarðabyggðar nái góðum árangri hvað varðar mál, tal og boðskipti og undirbúning fyrir frekara lestrarnám.

Lögð verður áhersla á að auka þekkingu og hæfni starfsfólks leikskólanna þannig að hvert barn fái íhlutun og kennslu við hæfi og að kennsla í grunnskólum byggi á niðurstöðum og áherslum frá leikskólum. Þannig verði stuðlað að aukinni samfellu milli skólastiga.

Með þessu samstarfsverkefni mun Fjarðabyggð taka þátt í að efla málþroska og læsi barna auk þess að valdefla starfsfólk leikskólanna með aðferðum snemmtækrar íhlutunar í leikskóla.

Verkefnið stendur yfir frá maí 2019 til maí 2020 og hófst í gær með sameiginlegum fundi þeirra Elsu Pálsdóttur og Andreu Önnu Guðjónsdóttur læsisráðgjöfum hjá Menntamálastofnun, með fulltrúum Skólaskrifstofu Austurlands og leikskólanna í Fjarðabyggð.

Fleiri myndir:
Menntamálastofnun og Fjarðabyggð gera með sér samstarfssamning um snemmtæka íhlutun og læsi í leikskóla

Frétta og viðburðayfirlit