mobile navigation trigger mobile search trigger
17.05.2019

Ný og endurskoðuð Menningarstefna

Bæjarstjórn samþykkti á fundi 16.maí nýja og endurskoðaða menningarstefnu Fjarðabyggðar. Menningarstefnan byggir á fyrri stefnu sem var samþykkt snemma árs 2017, en um var að ræða metnaðarfulla stefnu sem skrifuð var upp úr vinnu starfshóps úr skapandi greinum.

Ný og endurskoðuð Menningarstefna

Endurskoðun menningarstefnunnar hófst í janúar 2019 undir umsjón Körnu Sigurðardóttur með ráðgjöf frá Tinnu Guðmundsdóttur, listamanns.

Eitt veigamesta verkefni fyrri menningarstefnu var stofnun Menningarstofu Fjarðabyggðar. Karna Sigurðardóttir hefur sinnt starfi forstöðumanns Menningarstofu frá því í júlí 2017, en hún er jafnframt fyrsti starfandi menningarfulltrúinn í Fjarðabyggð. Mikið mótunarstarf hefur farið fram á síðastliðnum tveimur árum og ber ný menningarstefna þess merki.

Aðgerðaráætlun endurskoðaðrar stefnu byggir á þróunarverkefnum sem starfrækt hafa verið á síðastliðnum tveimur árum og sérstök áhersla er á menningu barna og ungmenna í stefnunni.

Stefnan er í fjórum köflum:

  • Menningarþátttaka sem snýr að aðgengi og fjölbreytni.
  • Börn og menningaruppeldi sem snýr að barnamenningu.
  • Faglegt og framsækið starfsumhverfi sem fjallar um stuðning við listafólk og listastofnanir.
  • Skapandi stjórnkerfi sem er opið fyrir nýjum hugmyndum.

Er það von Menningarstofu að metnaðarfull og samfélagsmiðuð menningarstefna leiði Fjarðabyggð inn í framtíðina með sköpunarkraft, hugmyndaauðgi og umburðarlyndi að vopni.

Menningarstefnur Fjarðabyggðar má sjá heild sinni hér: Endurskoðuð Menningarstefna Fjarðabyggðar 2019-202.pdf

Frétta og viðburðayfirlit