mobile navigation trigger mobile search trigger
30.12.2016

Nýjar reglur og lög um húsaleigubætur

Um áramótin taka nýjar reglur um húsaleigubætur gildi.  Fjarðabyggð veitir þá ekki lengur almennar húsaleigubætur til leigjanda.   Í staðinn koma reglur um sérstakan húsnæðisstuðning sem bæjarstjórn samþykkti á síðasta fundi sínum.  

Nýjar reglur og lög um húsaleigubætur

Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning

Með samþykkt Alþingis í júní 2016 á „Lög um um húsaleigubætur nr. 75/2016“ voru almennar húsaleigubætur aflagðar en í þeirra stað koma húsaleigubætur sem Vinnumálastofnun afgreiðir.  Finna má allar upplýsingar um hið nýja fyrirkomulag á vef stofnunarinnar eða á vefslóðinni www.husbot.is   Á sama hátt og almennar húsaleigubætur hafa verið aflagðar þá hafa einnig sérstakar húsaleigubætur verið aflagðar frá og með áramótum.  

Á næstu dögum verða öllum þeim sem þegið hafa húsaleigubætur hjá Fjarðabyggð á árinu sent bréf, þar sem nýtt fyrirkomulag er útskýrt. 

Frétta og viðburðayfirlit